Hvað er Nálgun
Fyrst Nálgun vinnur með hugbúnað og lausnir, en er ekki hugbúnaðarhús, hvað er þá Nálgun?
Þessari spurningu er best svarað með orðum Ricardo Semler þegar hann lýsir stórfyrirtækinu Semco – sem er heimsþekkt fyrir áhugaverða stjórnunar- og rekstrarhætti.
… what is Semco? I can’t tell you. If you ask me to describe it in conventional business terms, I’d have to admit I have no idea what business Semco is in. For the last 20 years, I have resisted defining Semco for a simple reason: Once you say what business you’re in, you create boundaries for your employees, you restrict their thinking and give them a reason to ignore new opportunities. ‘We’re not in that business,’ they’ll say. Instead of dictating Semco’s identity, I let our employees shape it with their individual efforts, interests, and initiatives. (Ricardo Semler, The Seven-Day Weekend)
Með öðrum orðum er Nálgun ekki skilgreind á neinu öðru sviði en því sem nafnið stendur fyrir. Við nálgumst verkefni og lausnir. Einfalt ekki satt?
Verkefnakerfi
Það er vandi að stýra verkefnum.
Þegar Nálgun var komin með fáein verkefni í pottinn varð vont að fá góða yfirsýn. Nálgun er mjög hrifin af hinu einfalda, svo greiða þurfti úr flækjunni. Mikið er til af Opnum verkstjórnar-kerfum og nokkur voru skoðuð.
Sum kerfi er hægt að prófa á Netinu og önnur þarf að setja upp á netþjóni. Um sama leyti fór Elías – sá sem þetta ritar – á námskeið í verkefnastjórn.
Niðurstaðan var einföld: Við forritum okkar eigið og þrem vikum síðar var komið einfalt kerfi fyrir fáa notendur. Einfalt ekki satt?
Í hugbúnaðar geiranum er mikið um svona rugl. Eigum við að smíða okkar eigið kerfi eða prófa nokkur og finna það sem hentar? Því stærra sem fyrirtækið er, og því flóknari sem verkefni þess eru, því erfiðara val.
Það er fokdýrt að láta einn forritara vinna í fimm vikur við að prófa ýmis kerfi og að lokum smíða sitt eigið. Sérstaklega eins og okkar kerfi, sem aðeins er í útgáfu 1. Við vitum vel að síðar þarf að forrita útgáfu 2. Við erum þegar komnir með lista yfir það sem þarf að betrumbæta eða bæta við.
Ástæðan fyrir þessu vali er þó einföld: Við vitum nákvæmlega hvernig þetta er forritað. Hönnunin er vandlega skráð niður. Viðhald er mjög auðvelt. Þarfirnar skýrar.
Hvað með vefumsjónarkerfi? Eigum við að smíða okkar eigið eða nota einhver opin kerfi? Hversu opin eru hin kerfin? Hvað er best? Joomla, Drupal, Open CMS, WordPress, eða eitthvað annað?
hvolpar.is
Vefurinn fyrir fólk sem selur – eða gefur – hvolpa á Íslandi.
Kerfið leyfir hverjum sem er að stofna sig inn á vefinn og setja inn auglýsingu.
Bæði má auglýsa hreinræktaða og blendings hvolpa á vefnum.
Vefurinn er ókeypis í notkun og er langtíma markmið að þegar þú leitar að hvolpi, eða vilt losna við hvolp eða hund, sé þetta staðurinn.
Þjónustan
Nálgun er fyrst og fremst hugbúnaðar þjónusta.
Forsprakkinn heitir Guðjón Elías Hreinberg Ívarsson sem hefur starfað við forritun og miðlun frá árinu 1993. Liðsstjórinn heitir Jón Viðar Ásmundsson sem er þúsundþjalasmiður og reynslubolti í sölu- og markaðsmálum.
Einkunnar orð nálgunar eru þessi: Það er einfalt að segja meiningu sína og skilvirkt að standa við hana.
WordPress vefir
Við höfum notað bæði klassísk WordPress kerfi og WordPress Multisite. Mest hefur þessi vinna falið í sér grunn uppsetningar á WP kerfinu á sjálfstæðum lénum og sjá til þess að þau keyri eðlilega með ýmsum viðbótum (plugins).
Við höfum ekki unnið mikið í breytingum á Templates (sniðmát) en þar sem Nálgun á og rekur eigin WP vefi þá er alltaf eitthvað um sniðmáta fikt hjá okkur.
Þess má geta að við höfum talsverða reynslu af að færa gamla og úrelta vefi úr öðrum kerfum yfir í WordPress.
PHP viðhald
Við hófum að gera eigin vefi í PHP árið 2003 og í öllum tilfellum voru vefirnir tengdir við MySQL gagnagrunna.
Síðan hefur mikið af bitum og bætum runnið um örgjörva. Til að mynda fóru árin 2006 til 2008 í gríðarmikla vinnu við viðhald, og umbætur á tugþúsunda PHP skrifta fyrir Íslensk fyrirtæki.
Síðan 2010 höfum við mest notað PHP við frumsmíði á gagnagrunns tengdum vefjum.
JSP forritun
Við unnum að sérforritun fyrir JSP kerfi á borð við Eplica árin 2008 og 2009.
Verkefnin fólust í að sækja upplýsingar í gagnagrunns kerfi og útbúa gögnin til birtingar. Þetta var gert með klassískri Java forritun. Síðan gerðum við JSP forrit sem tóku við gögnunum og birtu þau.
Þessar sömu einingar voru yfirleitt tengdar inn í Eplica vef.
Þess má geta að við höfum auk þessa gríðarmikla reynslu í notkun og kennslu á Java forritun. Mest þó á árunum 2002 til 2005 – en við höfum ávallt gætt þess að halda okkur við í nýjustu tækni á því sviði.
Freelance forritun
Forritari til leigu til skemmri og lengri tíma.
Eins og fyrr segir hefur Nálgun mjög lítinn áhuga á að festa sig í forritun lengri verkefna. Við höfum meiri áhuga á að vinna með þér í leit að lausnum sem henta þér.
Slíkar lausnir gætu verið
- Lækka kerfiskostnað um 20% árlega
- Auka gæði í hugbúnaðarþróun
- Fjarlægja hindranir
- Finna betri leiðir


